Nei, Véfréttin yngist ekkert, svo mikið er víst komið á hreint.
Í ár var súpergrúppan Sigur Rós svo höffleg að fagna afmæli Véfréttarinnar með heimsfrumsýningu á sinni einka-kvikmynd; Heima.
Verandi fyrrum mjúkrokksnörd hafði Véfréttin gerst sek um mætingu á tvo af tónleikunum í myndinni og heiðraði því frumsýningargesti með nærveru sinni (á 24ða bekk, nálægt enda hægra megin (eins konar stúka)).
Hér gefur á að líta Véfréttina ásamt tveimur öðrum framákonum úr elítunni sem spókuðu sig í frumsýningarljósunum (kallast PR).
En þar með var ekki öll sagan sögð. Véfréttinni til undrunar og gleði fylltist húsið af afmælisgestum á laugardaginn og Véfréttin upplifði sig sem afar vinsæla konu. Jei!
Fullt hús af börnum: