föstudagur, ágúst 25, 2006

Samtals eru nú afstaðnar þrjár mis-viðamiklar gæsanir, ein sérdeilis umfangsmikil og vel heppnuð (af afspurn) steggjun, lóðsun 9 útlendinga inn í landið, í Bláa Lónið, hvalaskoðun o.þ.h., kaup á fjölbreytilegum veigum og veitingum fyrir áður óþekktar fjárhæðir (fyrir véfréttinni allavega)... já og ýmislegt smálegt sem allan daginn tæki að tína til.

Skemmst er frá því að segja að allar líkur eru á að næsta færsla véfréttarinnar verði undir titlinum ,,frú".

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með daginn!

laugardagur, ágúst 26, 2006 2:32:00 e.h.  
Blogger Véfrétt said...

Æ, takk... ;-)

þriðjudagur, ágúst 29, 2006 7:35:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home