þriðjudagur, júlí 25, 2006

Einu sinni á ári vinnur maður í lottói. Eða þannig líður manni alltaf. Jafnvel þó að vísbendingar við skattaframtal bendi til þess að hagur konu muni vænkast í lok júlí þá er kona alltaf jafn skelfing hissa - og glöð.

Reyndar hef ég líka lent í því að lottóvinningurinn var öfugur og það var ég sem þurfti að borga yfirvöldum háar fúlgur. Það var minna gaman.

Merkilegt hvað kona er einföld - það er ekki eins og kona eigi ekki sjálf þennan pening og hafi ekki unnið fyrir honum með eigin blóði, svita og tárum. Kannski er þetta svona ,,enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur - og fengið á ný"-fílingur.



Allavega; hvet mína nýríku lesendur til að tjá fögnuð sinn (eða örvæntingu) í þar til gerðri comment-lykkju hér fyrir neðan...

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hmm ert þú búin að fá endugreitt frá skattinum??? Er það ekki í ágúst?Hmmmmmm....

miðvikudagur, júlí 26, 2006 1:57:00 e.h.  
Blogger tvíburamamman um lífið og tilveruna said...

vann sko EKKI í lottóinu þetta árið...

held í vonina að ári

sunnudagur, júlí 30, 2006 2:19:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

118 þús í plús. Jibbí!

sunnudagur, júlí 30, 2006 3:50:00 e.h.  
Blogger Skotta said...

Fæ alltaf eitthvað fyrir rest því ég skulda svo mikið á Íslandi. Vextir sem maður borgar af skuldum heima eru frádráttarbærir í Danmörku. Þessi staða er þó ekki varanleg því einhverntíma eru vextirnir fullborgaðir og ég byrja að borga sjálft lánið niður ...

fimmtudagur, ágúst 10, 2006 12:12:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

-400 fyrir mig. Trygging...

sunnudagur, ágúst 20, 2006 4:08:00 f.h.  
Blogger Véfrétt said...

Samhryggis þér innilega Anonymous... :-o

þriðjudagur, ágúst 29, 2006 7:36:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home